Sunnudagur, 17. ágúst 2008
Pirringur par exelance
Get ekki lýst því nánar en stendur ég fyrirsögninni. Er alveg fáránlega pirruð yfir öllu og engu. Hvort það sé að ég er búin að vera að vinna eitthvað meira en vanalega eða þá að...ég ég veit það ekki.
Hef ekki grænan um hvað er hægt að blogga, örugglega ekkert þegar maður er svona pirraður.
Fjúff, ég hreint og beint titra. Er liggur við ekki húsum hæf og held mig því inni í herbergi að lesa á Wikipediu sem er nýi besti vinur minn.
Blehhh...ég held ég fari bara að hætta þessu rugli og skrifi þegar ég hef eitthvað skiljanlegt að segja.
Kveðja
Valgerður hin pirraða.
PS. Ef einhvern tíman væri skrifað um mig eins og konungsfjölskyldur Evrópu í den, sem fengu alls kyns viðurnefni eftir athæfum þeirra og einkennum að þá myndi þetta lýsa mér. Þ.e. kveðjan.
Athugasemdir
...þá er kannski gott að þú ert ekki dottning..hehe..
Haraldur Davíðsson, 17.8.2008 kl. 20:23
Já ég held það væri frekar skrautleg frásögn í sögubókunum ef ég hefði einhverntíman verið drottning
Valgerður Sigurðardóttir, 17.8.2008 kl. 23:19
Hæ kella, afhverju svararu ekki símanum þínum :(
Ég er búin að hringja og hringja í þig. Kannski við getum verið pirraðar saman í dag? :)
Ætlaru að heyra í mér?
Kristín B. (IP-tala skráð) 19.8.2008 kl. 08:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.